Frægir fögnuðu með Brynju Baldurs

Hverjir voru hvar | 8. febrúar 2024

Frægir fögnuðu með Brynju Baldurs

Brynja Baldursdóttir opnaði sýninguna Kom-andi á safnanótt í Listasafni Einars Jónssonar. Talið er að hátt í tvö hundruð manns hafi lagt leið sína í safnið umrætt kvöld en margir úr íslensku lista- og mennignarlífi létu sjá sig eins og til dæmis Jakob Frímann Magnússon, Lilja Pálmadóttir, Elísabet Ásberg og Guðjón Ketilsson. 

Frægir fögnuðu með Brynju Baldurs

Hverjir voru hvar | 8. febrúar 2024

Það var líf og fjör í Listasafni Einars Jónssonar á …
Það var líf og fjör í Listasafni Einars Jónssonar á safnanótt. Samsett mynd

Brynja Baldursdóttir opnaði sýninguna Kom-andi á safnanótt í Listasafni Einars Jónssonar. Talið er að hátt í tvö hundruð manns hafi lagt leið sína í safnið umrætt kvöld en margir úr íslensku lista- og mennignarlífi létu sjá sig eins og til dæmis Jakob Frímann Magnússon, Lilja Pálmadóttir, Elísabet Ásberg og Guðjón Ketilsson. 

Brynja Baldursdóttir opnaði sýninguna Kom-andi á safnanótt í Listasafni Einars Jónssonar. Talið er að hátt í tvö hundruð manns hafi lagt leið sína í safnið umrætt kvöld en margir úr íslensku lista- og mennignarlífi létu sjá sig eins og til dæmis Jakob Frímann Magnússon, Lilja Pálmadóttir, Elísabet Ásberg og Guðjón Ketilsson. 

Brynja á að langi farsælan feril sem myndlistamaður og hönnuður en hún lærði við Royal College of Art í London. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína auk þess sem hún var bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2023.

Með þessari sýningu er Brynja að leitast við að skyggnast inn í órjúfanlegt samspil komu og brottfarar, eilífa hringrás umbreytinga og andartaksins þar á milli.

„Einstakar hreyfingar okkar hið innra og ytra eru samofnar hreyfingum annarra sem hluti af stærri kosmískum dansi. Frá þessum sjónarhóli getur fólk skynjað sig sjálft sem samtímis eilíft „komandi“ og „farandi“ í straumhvörfum núvitundar í átt að stað sem enn er óljós,“ segir í tilkynningu. Sýningin stendur til 25. ágúst.

Guðrún Vilmundardóttir bókaútgefandi og Guðjón Ketilsson listamaður.
Guðrún Vilmundardóttir bókaútgefandi og Guðjón Ketilsson listamaður. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnkell Örn Guðjónsson og Esther Þorvaldsdóttir.
Hrafnkell Örn Guðjónsson og Esther Þorvaldsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Bryna Baldursdóttir, Lilja Pálmadóttir og Elísabet Ásberg.
Bryna Baldursdóttir, Lilja Pálmadóttir og Elísabet Ásberg. Ljósmynd/Aðsend
Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir og Freydís Kjartansdóttir.
Hrafnhildur Jóna Hjartardóttir og Freydís Kjartansdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Brynja Baldursdóttir, Jakob Frímann Magnússon og Rakel Gústafsdóttir.
Brynja Baldursdóttir, Jakob Frímann Magnússon og Rakel Gústafsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Kira Ragnarsdóttir, Ragnar Jónasson og Natalía Ragnarsdóttir.
Kira Ragnarsdóttir, Ragnar Jónasson og Natalía Ragnarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Kjartan Bjargmundsson, Guðrún Vilmundardóttir, Ragnheiður Elfa Arnardóttir og Guðjón Ketilsson.
Kjartan Bjargmundsson, Guðrún Vilmundardóttir, Ragnheiður Elfa Arnardóttir og Guðjón Ketilsson. Ljósmynd/Aðsend
Hátt í tvö hundruð manns lögðu leið sína í listasafnið …
Hátt í tvö hundruð manns lögðu leið sína í listasafnið á safnanótt. Ljósmynd/Aðsend
Fólk að virða fyrir sér innsetningu Brynju á safnanótt.
Fólk að virða fyrir sér innsetningu Brynju á safnanótt. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is