Það vantaði ekki upp á gleðina né sólina í Álfheimum þegar myndlistakonan Hanna Jónsdóttir opnaði sýninguna Í fundnu máli síðastliðinn laugardag í Havarí. Hanna vinnur með tungumálið í verkum sínum, en á sýningunni er athygli dregin að stafsetningarvillum, málfarsvillum og útúrsnúningum á skemmtilegan máta sem fékk gesti til að brosa.

Á opnunina mættu gestir á borð við leikkonuna Söndru Barilli sem sló í gegn í þáttunum IceGuys sem fjalla um samnefnt strákaband, rithöfundinn Hallgrím Helgason og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóra í Reykjavík.
Hanna er í dag búsett í Reykjavík en er frá Jaðri í Suðursveit. Hún hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum í gegnum árin, bæði sjálfstætt sem og undir nöfnunum Attikatta og Dyslextwhere. Áhugi Hönnu á fornu máli, vegaleysi og ólæsi birtist á mismunandi hátt og endurtekið í verkum hennar, auk vangaveltna um það hvar hún er stödd í heiminum og hvernig við tengjumst honum eða skynjun.