Árásin á Volkov „líklega“ skipulögð af Rússum

Úkraína | 13. mars 2024

Árásin á Volkov „líklega“ skipulögð af Rússum

Leyniþjónustan í Litháen segir að árásin sem var gerð á rússneska stjórnarandstæðinginn Leonid Volkov, náinn samstarfsmann Alexeis Navalnís, hafi líklega verið skipulögð af Rússum.

Árásin á Volkov „líklega“ skipulögð af Rússum

Úkraína | 13. mars 2024

Gitanas Nauseda, forsætisráðherra Litháens, í gær.
Gitanas Nauseda, forsætisráðherra Litháens, í gær. AFP/Gonzalo Fuentes

Leyniþjónustan í Litháen segir að árásin sem var gerð á rússneska stjórnarandstæðinginn Leonid Volkov, náinn samstarfsmann Alexeis Navalnís, hafi líklega verið skipulögð af Rússum.

Leyniþjónustan í Litháen segir að árásin sem var gerð á rússneska stjórnarandstæðinginn Leonid Volkov, náinn samstarfsmann Alexeis Navalnís, hafi líklega verið skipulögð af Rússum.

„Enginn hræddur við þig hérna“

Gitanas Nauseda, forseti Litháens, sagði að möguleg aðkoma rússneskra stjórnvalda að árásinni ætti ekki að koma á óvart og bætti við um Vladimír Pútín Rússlandsforseta: „Það er enginn hræddur við þig hérna.”

Lenoid Volkov eftir árásina.
Lenoid Volkov eftir árásina. AFP

Litháen, sem er í NATO og ESB, hefur verið ötull stuðningsmaður Úkraínu síðan Rússar réðust inn í landið fyrir rúmum tveimur árum síðan.

Í yfirlýsingu litháísku leyniþjónustunnar kom fram að árásin hefði „líklega” verið aðgerð „skipulögð og framkvæmd af Rússum með þeim tilgangi að stöðva verkefni rússnesku stjórnarandstöðunnar”.

mbl.is