Leggur til langtímastuðning við Úkraínu

Úkraína | 19. mars 2024

Leggur til langtímastuðning við Úkraínu

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti í dag þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára.

Leggur til langtímastuðning við Úkraínu

Úkraína | 19. mars 2024

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillöguna á Alþingi í dag.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillöguna á Alþingi í dag. Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti í dag þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára.

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti í dag þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára.

Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa.

Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðsins.

Stuðningur við Úkraínu öryggishagsmunamál

Í framsögu sinni lagði Bjarni áherslu á mikilvægi stuðnings Íslands við núverandi aðstæður.

„Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er alvarlegasta öryggisógn sem steðjað hefur að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar og skýr atlaga að alþjóðakerfinu sem byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og landhelgi ríkja.“

Íslenskur stuðningur við öryggi og sjálfstæði Úkraínu væri þannig rökréttur í ljósi öryggishagsmuna Íslands og mikilvægi þess alþjóðakerfis sem fullveldi landsins byggir á, segir í tilkynningunni.

Stuðningur Íslands nemur 5,7 milljörðum króna

Í tilkynningu Stjórnarráðsins kemur fram að með stefnunni sé markmiðið að Ísland styðji við sjálfstæði, fullveldi, friðhelgi landamæra, öryggi borgara, mannúðaraðstoð og uppbyggingarstarf í landinu.

Stefnan byggir á fimm meginþáttum, öflugu tvíhliða samstarfi, virkri þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, öflugum stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu, mannúðaraðstoð, og stuðningi við viðhald grunnþjónustu og efnahags á meðan á átökum stendur og endurreisn og uppbyggingu eftir að þeim lýkur.

Þá sagði Bjarni í ræðu sinni að Ísland hefði aldrei áður stutt með svo beinum hætti við varnir annars lands og það sem meira væri, þá hefði ríkt almenn sátt um þá aðstoð meðal þings og þjóðar.

Stuðningur Íslands við Úkraínu frá því að stríðið braust út nemur 5,7 milljörðum íslenskra króna, sem runnið hafa til varnar-, mannúðar- og efnahagsstuðnings við landið.

mbl.is