Rússar segja Ísland styðja úkraínska nasista

Úkraína | 20. mars 2024

Rússar segja Ísland styðja úkraínska nasista

María Sakharóva, talskona rúss­neska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, segir Ísland þjálfa úkraínska sjóliða á yfirráðasvæði sínu. Segir hún málaliða frá Íslandi ferðast til Úkraínu.

Rússar segja Ísland styðja úkraínska nasista

Úkraína | 20. mars 2024

Íslendingar hafa lýst yfir miklum stuðningi við Úkraínu síðan Rússar …
Íslendingar hafa lýst yfir miklum stuðningi við Úkraínu síðan Rússar réðust inn í landið í febrúar 2022. mbl.is/Óttar

María Sakharóva, talskona rúss­neska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, segir Ísland þjálfa úkraínska sjóliða á yfirráðasvæði sínu. Segir hún málaliða frá Íslandi ferðast til Úkraínu.

María Sakharóva, talskona rúss­neska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, segir Ísland þjálfa úkraínska sjóliða á yfirráðasvæði sínu. Segir hún málaliða frá Íslandi ferðast til Úkraínu.

Þetta er haft eftir henni í færslu, sem utanríkisráðuneyti Rússlands hefur birt á X, þar sem stuðningur Íslands við Úkraínu er gagnrýndur og Ísland sagt styðja úkraínska nasista.

Þá er dregið í efa hve friðsamt Ísland er í færslunni. 

„Hið ó-svo „friðsama“ Ísland reynir þannig að halda í við æðri bandamenn sína við að styrkja úkraínska nasista.“

Sjóliðsforingjaefni þjálfuð hér

Ísland hefur tekið að sér þjálfun úkraínskra sjóliðsforingjaefna sem fá verklega þjálfun við Ísland í siglingafræði, eftirliti og aðgerðum á hafi, meðal annars leit og björgun. 

Verkefnið er hluti af þjálfunarverkefni Atlantshafsbandalagsins.

Ráðherra leggur áherslu á stuðning við Úkraínu

Utanríkisráðuneyti Rússlands merkti sendiráð Rússlands á Íslandi og íslenska utanríkisráðuneytið í færslunni. Rússneska sendiráðið deildi einnig færslunni á eigin reikningi. 

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti í gær þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára.

mbl.is