Gætu dregist niður í fallbaráttuna

Dagmál | 7. apríl 2024

Gætu dregist niður í fallbaráttuna

„Skagamenn eru stórt félag í sögu íslenska boltans og það er alltaf ákveðin stemning í kringum þá,“ sagði Víðir Sigurðsson, fréttastjóri íþrótta hjá Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um ÍA.

Skagamönnum er spáð 9. sæti deild­ar­inn­ar í spá íþrótta­deild­ar Árvak­urs en liðið hafnaði í efsta sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð.

Flakkað á milli deilda

„Skagamenn hafa ekki unnið neitt í meira en tuttugu ár og hafa verið að flakka mikið á milli tveggja efstu deildanna í talsverðan tíma,“ sagði Víðir.

„Ég held að raunhæfasta markmið þeirra sé að halda velli og gera liðið að stöðugu liði í efstu deild en þeir þurfa að passa sig því þeir gætu dregist niður í fallbaráttuna ef hlutirnir falla ekki með þeim til að byrja með,“ sagði Víðir meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild karla má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Skagamenn fögnuðu sigri í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Skagamenn fögnuðu sigri í 1. deildinni á síðustu leiktíð. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
mbl.is