Stóra spurningin í Vesturbænum er þjálfarinn

Dagmál | 7. apríl 2024

Stóra spurningin í Vesturbænum er þjálfarinn

„Stóra spurningin í Vesturbænum er þjálfarinn,“ sagði Viðar Guðjónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um KR.

Vesturbæingum er spáð 4. sæti deild­ar­inn­ar í spá íþrótta­deild­ar Árvak­urs en liðið hafnaði í sjötta sæt­inu á síðustu leiktíð.

Eru ákveðið spurningamerki

„Þjálfarinn þarf að sanna sig og hann var ekki að gera einhverja frábæra hluti í 1. deildinni,“ sagði Viðar.

„Það varð ákveðinn viðsnúningur þegar hann tók við Þrótturum en svo fjaraði undan því. Þeir eru búnir að fá inn leikmenn sem maður gerir ákveðnar væntingar til.

Þeir eru ákveðið spurningamerki og þeir eru betri en í fyrra en það þarf að koma í ljós hvort þeir eigi eitthvað erindi í alvöru toppbaráttu,“ sagði Viðar meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild karla má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

KR-ingum er spáð 4. sætinu í ár.
KR-ingum er spáð 4. sætinu í ár. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is