Morgunblaðið býður í kvöld kl. 19.30 til opins umræðufundar með forsetaframbjóðandanum Jóni Gnarr í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson munu ræða við Jón um framboð hans til embættis forseta Íslands.
Auk þess munu sérstakir álitsgjafar spá í spilin, sem að þessu sinni verða þau Lilja Rafney Magnúsdóttir og Guðmundur M. Kristjánsson. Einnig gefst gestum úr sal tækifæri á að beina spurningum til frambjóðandans.
Á Edinborg Bistro verða góð tilboð í gangi fyrir fundargesti á meðan á fundi stendur.
Ísfirðingar og nærsveitungar eru hvattir til að mæta.