Lögreglustjóri Ferguson segir af sér

Lögreglustjóri Ferguson hefur sagt af sér.
Lögreglustjóri Ferguson hefur sagt af sér. AFP

Lögreglustjórinn í Ferguson í Missouri hefur sagt af sér í kjölfar skýrslu sem sýnir að lögregluþjónar borgarinnar mismuni borgurum eftir kynþætti.

Í skýrslunni, sem gerð var af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna kemur m.a. fram  að 93% handtekinna í Ferguson á tveggja ára tímabili voru svört. Jafnframt voru 85% þeirra sem stöðvaðir voru af lögreglu svört. Sjö mánuðir eru síðan hvítur lögreglumaður skaut óvopnaðan svartan átján ára mann til bana í borginni.

Vakti það mál heims­at­hygli og hlutu lög­reglumaður­inn, Dar­ren Wil­son, og lög­reglu­yf­ir­völd í bæn­um mikla gagn­rýni í  kjöl­farið. Wil­son hef­ur alltaf haldið því fram að hann hafi skotið hinn átján ára gamla Michael Brown í sjálfs­vörn þrátt fyr­ir að Brown væri óvopnaður. Að sögn vitna var Brown uppi með hend­ur er Wil­son hleypti af byss­unni.

Wilson verður ekki ákærður fyrir morðið á Brown. 

Rík­is­stjóri Mis­souri, Jay Nixon, hefur sagt að skýrsl­a dómsmálaráðuneytisins sé „mjög trufl­andi“.

Lögreglustjórinn heitir Thomas Jackson og fetar hann í fótspor annarra yfirmanna í réttarkerfi borgarinnar með því að segja af sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert