Trump minntist atburða 7/11

Verslunarkeðjan 7-Eleven var Trump ofarlega í huga á kosningafundi hans …
Verslunarkeðjan 7-Eleven var Trump ofarlega í huga á kosningafundi hans í Buffalo í gærkvöldi. AFP

Hryðjuverkin í New York 11. september árið 2001 líður borgarbúum seint úr minni. Það virðist þó ekki eiga við um auðkýfinginn Donald Trump sem ruglaði dagsetningunni saman við verslunarkeðjuna 7-Eleven á kosningafundi fyrir forkosningar repúblikana í New York-ríki.

„Ég var þarna og ég horfði á lögreglu- og slökkviliðsmennina okkar á 7-Eleven, niðri við World Trade Center um leið og hann hrundi og ég sá mikilfenglegasta fólk sem ég hef séð að störfum,“ sagði Trump við stuðningsmenn sína í Buffalo í gær.

Iðulega er vísað til árásanna með dagsetningunni 11. september en á ensku er þá talað um 9/11. Trump virtist ekki gera sér grein fyrir mistökum sínum og áheyrendur hans virtust heldur ekki kippa sér upp við þau, að því er kemur fram á vef New York Times.

Mistökin vöktu þó fljótt athygli á samfélagsmiðlum þar sem netverjar töldu verslunarkeðjuna hafa fengið bestu auglýsingu sem hún hefði nokkru sinni fengið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert