Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, mun funda með Frans páfa í Vatíkaninu í byrjun næsta mánaðar. Viðurkenning Bandaríkjaforseta á Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels verður líklega aðalefni fundarins.
Leiðtogi Tyrklands og æðsti leiðtogi rómversk-kaþólsku kirkjunnar hafa báðir mótmælt ákvörðun Donalds Trumps frá því í desember, að viðurkenna Jersúsalem sem höfuðborg Ísraels.
Fundurinn í Vatíkaninu fer fram 5. febrúar og verður það í fyrsta skipti sem Erdogan heimsækir smáríkið. Hann hefur verið í símasambandi við páfann hingað til þar sem þeir hafa rætt ástandið á landamærum Ísraels og Palestínu.
Frans páfi og Erdogan hafa hist einu sinni áður, þegar páfinn ferðaðist til Tyrklands í nóvember 2014. Forseti Tyrklands heimsótti Vatíkanið síðast árið 1959.
Einnig má búast við að Erdogan nýti fundinn til að reyna að greiða leið Tyrklands inn í Evrópusambandið. Erdogan heimsótti Frakkland í byrjun árs og sagði þá meðal annars að Tyrkir væru búnir að fá nóg af því að bíða eftir því að geta gengið í Evrópusambandið eftir að hafa beðið í hálfa öld eftir því.
Frétt mbl.is: Tyrkir orðnir leiðir á að bíða
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði stjórnmálaþróunina í Tyrklandi vera hindrun í vegi inngöngu landsins í sambandið og lagði til að gerður verði samstarfssamningur við Tyrki í staðinn.