„Þið munið sjá eftir ákvörðun ykkar“

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í Evrópuþinginu í dag.
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í Evrópuþinginu í dag. AFP

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jean-Claude Juncker, sagði í Evrópuþinginu í dag að sá dagur kæmi að Bretar myndu sjá eftir því að hafa sagt skilið við sambandið.

Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph að Juncker hefði áður en ummælin féllu rifjað upp að rétt rúmt ár væri þar til Bretland yfirgæfi Evrópusambandið (Brexit) formlega.

Þingmenn Breska sjálfstæðisflokksins (UKIP) fögnuðu þegar Juncker rifjaði þetta upp og sagði þá forsetinn: „Sá tími mun koma þegar þið munið sjá eftir ákvörðun ykkar.“

Við því brugðust þingmennirnir með hlátrasköllum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert