Glæpagengi talið hafa ráðist mótmælendur

Stilla úr myndbandsupptöku af árásinni á lestarstöðinni.
Stilla úr myndbandsupptöku af árásinni á lestarstöðinni. AFP

45 eru særðir, þar af einn lífshættulega eftir að hópur manna vopnaður bareflum réðst á mótmælendur á lestarstöð í Hong Kong í gærkvöldi. Atvikið hefur vakið mikla reiði í borginni ekki hvað síst þar sem lögregla þótti afar lengi að koma sér á staðinn.

AFP-fréttaveitan segir myndir sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum sýna menn vopnaða kylfum, prikum og járnstöngum berja fjölda mótmælenda og blaðamanna á Yuen Long-lestarstöðinni og inni í neðanjarðarlestum á stöðinni þannig að blóðpollar mynduðust á gólfinu. Einn er lífshættulega særður líkt og áður sagði og fimm til viðbótar eru alvarlega sárir.

Mennirnir klæddust flestir hvítum stuttermabolum og huldu andlit sín.
Mennirnir klæddust flestir hvítum stuttermabolum og huldu andlit sín. AFP

Grunur leikur á að mennirnir, sem flestir klæddust hvítum stuttermabolum, tilheyri kínversku glæpagengi. 

Mótmælt var í Hong Kong alla helgina, sjöundu helgina í röð, og skaut lög­regla gúmmí­kúl­um á og beitti tára­gasi gegn hópi mót­mæl­enda í borg­inni.

BBC segir þetta í fyrsta skipti sem komið hafi til ofbeldis á þessum skala í mótmælunum, sem hófust vegna umdeilds lagafrumvarps sem heimila á framsal á meintra glæpamanna til Kína.

Fjölmargir þingmenn hafa þegar gagnrýnt hversu lengi lögregla var að bregðast við árásinni á lestarstöðinni. Þingmaðurinn Lam Cheuk-ting sagði það hafa tekið lögreglu rúman klukkutíma að mæta á staðinn.  

Þá benti þingmaðurinn Ray Chan á Twitter á að óvíða í heiminum væru fleiri lögreglumenn á hvern íbúa en í Hong Kong. „Hvar voru þeir?“ spurði hann.

Árásarmennirnir fóru einnig inn í neðanjarðarlestir á stöðinni og réðust …
Árásarmennirnir fóru einnig inn í neðanjarðarlestir á stöðinni og réðust á mómælendur þar. AFP

BBC hefur eftir lögreglu nú í morgun að enginn hafi enn verið handtekinn vegna málsins en rannsókn sé í gangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert