Bensínsprengjur og eldörvar sem varpað er úr heimasmíðuðum valslöngvum eru meðal vopna sem mótmælendur í Hong Kong hafa gripið til í aðgerðum sínum gegn lögreglu.
Stanslaus mótmæli hafa verið í borginni síðustu fjóra daga. Mótmælin hófust fyrir sex mánuðum og til að byrja með var mótmælt á hverjum laugardegi, en mótmælin hafa stigmagnast síðustu vikur. Mótmælendur krefjast aukins lýðræðis fyrir Hong Kong. Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, sagði á blaðamannafundi eftir mótmælin á mánudag að að mótmælendur væru óvinir fólksins.
Stjórnvöld í Hong Kong greindu frá því í dag að skólar og aðrar menntastofnanir verði lokaðar fram yfir helgi og heilbrigðisþjónusta af skornum skammti.
Mótmælendur hafa sett upp vegatálma víða í borginni, einkum í fjármálahverfinu, og hefta aðgengi að neðanjarðarlestum. Fólk á því erfitt með komast til og frá skóla eða vinnu.
Háskólar í borginni hafa sumir hverjir orðið að miðdepli mótmælenda sem segjast vera að verja sig gegn lögreglu. Valslöngvu hefur verið komið fyrir á skólalóð tækniháskóla í borginni og dýnur hafa verið teknar úr stúdentaíbúðum og notaðar sem skjól gegn gúmmíkúlum lögreglu. Um þúsund mótmælendur, margir hverjir nemendur, söfnuðust saman við skólann í dag.
„Ef lögreglan kemur munum við hlaða valslöngvuna með múrsteinum, bensínsprengjum og eldörvum,“ segir 23 ára mótmælandi í samtali við AFP-fréttastofuna.