Kröfðust réttlætis í Louisville

Mótmælin héldu áfram í Louisville.
Mótmælin héldu áfram í Louisville. AFP

Yfir eitt þúsund manns hunsuðu reglur um sóttkví í bandarísku borginni Louisville annan daginn í röð og  mótmæltu því að lögreglumenn hefðu ekki verið ákærðir fyrir að skjóta Breonnu Taylor til bana. Áður höfðu tveir lögreglumenn verið skotnir til bana í mótmælum í borginni.

Taylor, 26 ára svört kona, var skotin til bana í íbúð sinni af lögreglunni fyrr á árinu.

Ben Crump ásamt Tamiku Palmer, móður Breonnu Taylor.
Ben Crump ásamt Tamiku Palmer, móður Breonnu Taylor. AFP

„Þangað til svart fólk öðlast mannréttindin sem okkur var lofað – lífi, frelsi og hamingju – og að djöfulgangi rasismans ljúki, þá unum við okkur ekki hvíldar,“ sagði Ben Crump, lögmaður fjölskyldu Taylor í blaðinu The Washington Post.

„Það er ekki inni í myndinni að við getum verið friðsöm lengur,“ sagði Michael Pyles, 29 ára, sem kvaðst hafa mótmælt síðastliðna 120 daga. Bar hann á sér 9mm skammbyssu.

Frá mótmælunum í Louisville.
Frá mótmælunum í Louisville. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert