Al Jazeera birti myndskeiðið af Bjarna

Rauðu glimmeri var kastað á utanríkisráðherra á ráðstefnu í Háskóla …
Rauðu glimmeri var kastað á utanríkisráðherra á ráðstefnu í Háskóla Íslands á föstudag. Ljósmynd/Aðsend

Katarski fjölmiðilinn Al Jazeera birti myndskeið af atvikinu þegar rauðu glimmeri var kastað yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra á föstudag. 

Fjölmiðilinn birti myndskeiðið á arabísku Instagram-síðu sinni í gær. Nærri 15 þúsund manns hafa líkað við færsluna. 

Bjarni birti færslu í gær á Facebook þar sem hann tjáði sig um atvikið. Hann sagðist ekki hafa viljað tjá sig við fjölmiðla um atvikið til þess að vekja ekki frekari athygli á því. Þá gagnrýndi hann umfjöllun Rúv um málið og að það hafi verið gerð sérstök T­ok-frétt um málið sem dótt­ir hans síðan sá. 

Við TikT­ok-frétt­ina eru at­huga­semd­ir skrifaðar af fjöl­mörg­um. Ein þeirra er þessi: „...henda sýru en ekki glimmeri á BB næst takk...“. Það mátti gera ráð fyr­ir að barnið spyrði hvað átt sé við en maður fer að velta fyr­ir sér, þegar maður les svona­lagað á vef sem Rík­is­út­varpið held­ur úti, hvenær ástæða er til að staldra við,“ sagði í færslu Bjarna. 

View this post on Instagram

A post shared by الجزيرة (@aljazeera)


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert