Thunberg: „Aðeins byrjunin“

Thunberg, önnur frá vinstri, fyrir utan Mannréttindadómstól Evrópu.
Thunberg, önnur frá vinstri, fyrir utan Mannréttindadómstól Evrópu. AFP/Frederick Florin

Aðgerðasinninn Greta Thunberg segir að niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu um að svissneska ríkið hafi ekki gert nægilega mikið til að stemma stigu við loftslagsvandanum sé „aðeins byrjunin”.

„Þetta er aðeins byrjunin á dómsmálum vegna loftslagsmála,” sagði Thunberg er hún var stödd í húsnæði dómstólsins í Frakklandi.

„Víðs vegar um heiminn mun sífellt fleira fólk höfða mál gegn stjórnvöldum sínum og draga þau til ábyrgðar vegna gjörða sinna.”

Greta Thunberg í húsnæði Mannréttindadómstóls Evrópu í morgun.
Greta Thunberg í húsnæði Mannréttindadómstóls Evrópu í morgun. AFP/Frederick Florin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert