Byltingavörðurinn tók yfir flutningaskip

Íranski byltingavörðurinn tók yfir flutningaskip fyrr í dag.
Íranski byltingavörðurinn tók yfir flutningaskip fyrr í dag. AFP/XGTY

Íranski herinn sem nefnir sig Íranski byltingavörðurinn tók stjórn á flutningaskipi sem Íranir telja tengjast „Síonistastjórninni“ (Ísrael) fyrr í dag nærri Hormuz-sundi. 25 skipverjar eru um borð í skipinu sem er nú verið að sigla inn á íranskt yfirráðasvæði.

Í myndbandi sem Íranir deildu á samfélagsmiðlum má sjá sérsveitarmenn íranska byltingavarðarins fara um borð í skipið úr þyrlu.

Vilja skilgreina byltingavörðinn sem hryðjuverkasamtök

Skipið siglir undir portúgölsku flaggi og heitir MSC Aries. Ísraelsmenn segja þetta vera sjóræningjaaðgerð og biðla nú til Evrópusambandsins að skilgreina íranska byltingavörðinn sem hryðjuverkasamtök.

„Ég kalla eftir því að Evrópusambandið og frjálsi heimurinn skilgreini íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök og grípi til refsiaðgerða gegn Íran,“ sagði Israel Katz, utanríkisráðherra Ísraels, í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum.

Hormuz-sundið tengir Persaflóa við Indlandshaf. Samkvæmt bandarísku orkuumálastofnuninni fer meira en 20% olíubirgða á heimsvísu um það ár hvert.

Biden segir Írana ætla ráðast á Ísrael

Mikill hiti einkennir samskipti Ísraels og Írans. Klerka­stjórn­in í Íran hef­ur heitið hefnd­um eft­ir að ráðist var á viðbygg­ingu við ræðismanns­bú­stað Írana í Damaskus í Sýr­landi, en sjö meðlim­ir ír­anska bylt­ing­ar­varðar­ins, þar af tveir hers­höfðingj­ar, féllu í árás­inni.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sagði í gær að hann ætti von á því að klerka­stjórn­in í Íran myndi reyna að ráðast á Ísra­el inn­an skamms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert