Hvellir og sprengjur heyrast í Ísrael

Járnskjöldurinn er sagður í fullri virkni.
Járnskjöldurinn er sagður í fullri virkni. AFP

Hvellir heyrast í Ísrael en IDF, Ísraelsher, segir að Járnskjöldurinn (Iron Dome ) sé í fullri virkni þrátt fyrir tilraunir Hisbollah að veikja varnarkerfið með eldflaugarárásum.

Tilkynningar um sprengingar í lofti hafa borist frá Tel Aviv og Jerúsalem. Eins hafa borist tilkynningar frá Beersheba og Hebron á Vesturbakkanum.

Jafnframt hafa íranar tilkynnt um að árásum Ísraela verði svarað af fullum þunga. Auk þess sem Bandaríkjamenn eru varaðir við að blanda sér í málið. 

Þá hafa Bandaríkjamenn og Bretar tilkynnt um að í kringum 100 drónar hafi verið skotnir niður af þeirra höndum. 

 



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert