Þúsundir minnast Raisi á götum úti

Blómsveigar hafa víða verið lagðir niður til minningar um Ebrahim …
Blómsveigar hafa víða verið lagðir niður til minningar um Ebrahim Raisi. AFP/Bay Ismoyo

Þúsundir Írana hafa safnast saman á götum úti í morgun til að minnast Ebrahim Raisi, forseta landsins, og sjö úr fylgdarliði hans sem fórust í þyrluslysi á sunnudag.

Syrgjendurnir veifa írönskum fánum og halda á myndum af forsetanum sáluga. Hófu þeir göngu frá torgi í borginni Tabriz í norðvesturhluta Írans, en Raisi var á leiðinni þangað þegar slysið varð.

Æðsti klerkur Írans, Ali Khameini, lýsti í gær yfir fimm daga þjóðarsorg vegna dauða Raisi. Jarðarför hans er fyrirhuguð á fimmtudaginn í fæðingarborg hans Mashhad. 

AFP/Ahmad Al-Rubaye
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert