Björk flytur til New York

Björk Guðmundsdóttir var stödd hér á landi í mánuðinum ásamt dóttur sinni nýfæddri, Ísadóru. Þær mæðgur fara af landi brott í dag til New York í Bandaríkjunum, en þangað hefur Björk flutt búferlum. Fyrir stuttu kom út diskur með helstu lögum Bjarkar sem valin voru af gestum á vefsetri hennar og einnig yfirlit yfir tónlistarferil hennar í sérstöku boxi. Einnig hyggst Björk gefa út fjórar tónleikaplötur í byrjun næsta árs en þær hafa verið í smíðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert