Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum sem hafa kostað almenna borgara lífið og sært fjölda fólks alvarlega, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum.
„Árásir á almenna borgara eru aldrei réttlætanlegar. Árásin sem beindist að almennum borgurum á leið til vinnu sýnir algjört virðingarleysi gagnvart mannhelgi. Þeir sem ábyrgð bera á árásunum verða að svara til saka í réttarhöldum sem samræmast alþjóðlegum viðmiðum,“ segir í tilkynningunni.
Þar er bent á að árásina beri upp á sama dag og minningarathöfn um Peter Benenson, stofnanda Amnesty International, í St.Martins - in the Fields kirkjunni í Lundúnum. „Ákall hans um samstöðu með öllum þeim sem sæta mannréttindabrotum er brýnt í dag sem alla daga.“
Íslandsdeild Amnesty International hvetur almenning til að koma á Lækjartorg kl. 17 í dag til að sýna samstöðu með fórnarlömbum árásanna í London, standa vörð um mannréttindi, minnast Peter Benenson og heiðra þær hugsjónir sem hann barðist fyrir.
Fólk er hvatt til að taka með sér kerti og tendra þau.