Ekki hefur náðst í 8 Íslendinga í London

Ekki hefur náðst í 8 Íslendinga í London, samkvæmt nýjustu upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Símavakt verður í utanríkisráðuneytinu til miðnættis í kvöld en þangað getur fólk hringt til þess að láta vita af eða spyrjast fyrir um Íslendinga í Lundúnum þar sem hryðjuverkaárásir voru gerðar í lestum og strætisvagni í morgun. Símanúmerið er 545-9900. Heiðrún Pálsdóttir, fulltrúi í ráðuneytinu, segir að um miðnætti í kvöld verði metið hvort vaktinni verði haldið áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert