Engar tafir á flugi til og frá Lundúnum

Engar tafir hafa orðið á flugi til og frá Lundúnum í dag. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir Heathrowflugvöll opinn fyrir umferð. Hins vegar sé ljóst að mjög erfitt verði fyrir farþega að komast bæði að flugvellinum og frá honum. Muni forsvarsmenn flugfélagsins fylgjast vel með þróun mála. Hins vegar muni ekki koma til að fresta flugi véla skili farþegar sér ekki í tæka tíð á völlinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka