Framboðslisti VG í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnakosningar í vor var samþykktur á félagsfundi hreyfingarinnar í gærkvöld. Fjögur efstu sætin voru bundin eftir prófkjör sem haldið var í lok nóvember.
Sæti listans skipa eftirfarandi:
- Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir
- Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur
- Emil Hjörvar Petersen, formaður VG í Kópavogi og háskólanemi
- Lára Jóna Þorsteinsdóttir, sérkennari
- Mireya Samper, myndlistarkona/kvikmyndagerðakona
- Sindri Kristinsson, nemi og stuðningsfulltrúi
- Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona
- Birgir Bragason, tónlistarmaður
- Guðmundur Ingi Kjerulf, stjórnmálafræðingur
- Margrét Pálína Guðmundsdóttir, kennari
- Jónas Þór Guðmundsson, sagnfræðinemi
- Ernst Backman, íþróttakennari
- Hafdís Hannesdóttir, félagsráðgjafi
- Ingvar Ingólfsson, kennari
- Ellen Sif Sævarsdóttir, nemi
- Hreggviður Norðdahl, jarðfræðingur
- Sigmar Þormar, fyrirtækjaráðgjafi
- Erlendur Jónsson, efnafræðinemi
- Hrafnhildur Scheving, húsmóðir
- Þórður Helgason, dósent KHÍ
- Sigurrós Sigurjónsdóttir skrifstofukona
- Valdimar Lárusson, leikari