Ellý Erlingsdóttir kjörin forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar

Ellý Erlingsdóttir var einróma kjörin forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og tekur við af Gunnari Svavarssyni sem gengt hefur stöðunni til 3 ára. Gunnar sóttist ekki eftir endurkjöri en hann hefur tekið sætið á Alþingi. Hann vék einnig úr bæjarráði.

Varaforsetar voru kjörnir þeir Guðmundur Rúnar Árnason og Almar Grímsson. Ellý Erlingsdóttir hefur verið formaður bæjarráðs sl. 3 ár og hættir því en Guðmundur Rúnar Árnason var kjörin formaður í hennar stað. Í bæjaráði sitja nú auk Guðmundar Rúnars, Ellý Erlingsdóttir, Haraldur Þór Ólason, Margrét Gauja Magnúsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir. Þá er Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir áheyranafulltrúi í bæjarráði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert