Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri

Kristján L. Möller afhendir Hreini Haraldssyni skipunarbréfið.
Kristján L. Möller afhendir Hreini Haraldssyni skipunarbréfið.

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra. Skipað er í embættið til fimm ára. Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn.

Vegamálastjóri veitir Vegagerðinni forstöðu. Helstu verkefni Vegagerðarinnar skiptast í framkvæmdir í vegamálum, umsjón með rannsóknum og þróun á sviði vegamála auk stjórnsýslu og eftirlits.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert