Laus úr haldi lögreglu

Lögreglustöðin í Reykjanesbæ
Lögreglustöðin í Reykjanesbæ Af vef lögreglunnar

Sexmenningarnir sem voru handteknir eftir að hafa hlekkjað sig við vinnuvélar á vinnusvæði Norðuráls í Helguvík í morgun eru lausir úr haldi.  Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var tekin skýrsla af fólkinu og það látið laust að því loknu.

Kl. 07:15 í morgun var tilkynnt að mótmælendur væru komir inn á vinnusvæði Norðuráls í Helguvík.  Lögreglumenn fóru á vettvang og kom í ljós að 6  voru hlekkjaðir við vinnuvélar þannig að vinna á svæðinu tafðist.  Samtals voru 12 mótmælendur á svæðinu og yfirgáfu 6 þeirra svæðið eftir að lögreglan gaf fyrirmæli þess efnis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert