Á Kilimanjaro um jólin

Kilimanjaro
Kilimanjaro

 Á aðfangadag mun Fjóla Dögg Helgadóttir paufast upp hlíðar Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku. Á meðan flestir Íslendingar borða jólamatinn og kíkja í jólapakka mun Fjóla Dögg takast á við súrefnisskort sem fylgir svo mikilli hæð og ekki er ólíklegt að hún þjáist af magakveisu á leiðinni.

Með Fjólu Dögg verður kærasti hennar Neil Yager.

„Á Þorláksmessu verðum við vakin um klukkan eitt um nóttina og svo verðum við að labba allan aðfangadag upp á topp,“ segir hún.

Þau kaupa ferðina af afrískri ferðaskrifstofu og er allur matur innifalinn, þó hvorki hamborgarhryggur né smákökur. Aðspurð um tildrög fjallgöngunnar segist Fjóla Dögg hafa sett sér ýmis markmið sem hún ætli að ná fyrir þrítugsafmælið hinn 5. apríl næstkomandi, s.s. að hlaupa maraþon undir fjórum tímum, ljúka doktorsritgerð í sálfræði og klífa Kilimanjaro.

Hún hljóp Sydney-maraþonið á 3:54 í september, stefnir á að klára doktorsritgerðina 1. apríl og standa á tindi Kilimanjaro á aðfangadag. Á hinn bóginn hefur dregist að læra ítölsku og kóresku. „En það verður bara gert fyrir 35 ára afmælið,“ segir hún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert