Daníel Jakobsson ráðinn bæjarstjóri Ísafjarðar

Daníel Jakobsson.
Daníel Jakobsson. Af vef Bæjarins besta

Daníel Jakobsson, útibússtjóri Landsbanka Íslands að Laugavegi, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Daníel er sonur hjónanna Auðar Daníelsdóttur og sr. Jakobs Hjálmarssonar, fyrrum sóknarprests á Ísafirði og síðar Dómkirkjuprests.  Bæjarins besta greinir frá.

Daníel er fæddur árið 1973. Hann er kvæntur Hólmfríði Völu Svavarsdóttur og eiga þau þrjú börn. Reiknað er með að Daníel komi til starfa í lok næsta mánaðar. Daníel var einn fremsti skíðagöngumaður landsins og keppti þá fyrir Ísafjörð. Hann var einnig um tíma í landsliði Íslands í skíðagöngu. Daníel var valinn íþróttamaður Ísafjarðar árið 1994.

27 einstaklingar sóttu um starf bæjarstjóra. Umsóknirnar voru teknar til úrvinnslu hjá Capacent sem síðan lagði niðurstöðurnar fyrir bæjarstjórn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert