Konur ganga út

Þrír karlar hjá Landsbankanum voru tilbúnir að ganga í störf …
Þrír karlar hjá Landsbankanum voru tilbúnir að ganga í störf gjaldkerans sem gekk út kl. 14:25. mbl.is/Ómar

Klukkan 14:25 lögðu konur víða niður störf og gengu út af vinnustöðum sínum til þess að halda upp á kvennafrídaginn. Í Reykjavík munu konur hittast við Hallgrímskirkju kl. 15 þaðan sem hópurinn mun ganga í sameiningu niður á Arnarhól.

Dagskráin í höfuðborginni er helguð baráttu kvenna gegn kynferðisofbeldi. Efnt verður til fjöldagöngu og útifunda víða um land í dag en í gær, þegar 35 ár voru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum, fór fram í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um ofbeldi gegn konum. 

Ástæðan fyrir því að konur eiga að ganga út kl. 14:25 er sú að samkvæmt rannsóknum á launamismun kynjanna hafa konur þá lokið vinnudegi sínum, í samanburði við karla.

Nánar um kvennafrídaginn.

Konur eru að koma sér fyrir á Hallgrímskirkjutorgi í Reykjavík …
Konur eru að koma sér fyrir á Hallgrímskirkjutorgi í Reykjavík en þaðan verður gengið niður í miðbæ. mbl.is/Kristinn
Starfsmenn Landsbankans við Austurstræti gengu út kl. 14:25 í dag.
Starfsmenn Landsbankans við Austurstræti gengu út kl. 14:25 í dag. mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert