Tíminn birtist aftur

Tíminn.is

Tíminn.is, nýr, íslenskur frétta-, þjóðlífs, og afþreyingarmiðill, opnaði í dag. Vefurinn er í eigu Útgáfufélags Tímans ehf, en ritstjóri er Valur Jónatansson.

Valur segir að stefna síðunnar sé að leggja áherslu á innlendar fréttir. Ritstjórinn segir að Tíminn ætli ekki að fara í samkeppni við stóra fréttamiðla á borð við mbl.is og vísi.is. Er ætlunin að skapa vefnum sérstöðu með mikilli umfjöllun utan af landi. Valur segir að meðal annars verði stuðst við héraðsfréttamiðla við fréttaöflun.

Margir kannast við einkennismerki og nafn vefsins. Valur segir að það sé ágætt að endurvekja Tímann. Lesendur kannist við nafnið.

Framsóknarflokkurinn á nafnið og lénið, en útgáfufélagið leigir það af flokknum. Þessi vefur er þó ekki rekinn af Framsóknarflokknum. „Að öðru leyti er þetta ekki tengt Framsóknarflokknum. Þetta á algjörlega að vera hlutlaus vefur, opinn öllum og óháður,“ segir Valur.

Skúli Sveinsson er framkvæmdastjóri útgáfufélagsins og í forsvari fyrir eigendahópinn. Hann segir eigendahópinn enn vera í þróun og að það muni skýrast bráðlega hverjir tilheyra honum.

Valur er eini starfsmaður félagsins að svo stöddu. Skúli segir að til standi að ráða framkvæmdastjóra og einn eða tvo blaðamenn til viðbótar á næstu dögum.

Tíminn.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert