Grímsvatnagosinu lokið

Við Grímsvötn eftir að öskugosinu lauk.
Við Grímsvötn eftir að öskugosinu lauk. LJósmynd/Kristján G. Kristjánsson

Gosinu í Grímsvötnum virðist vera lokið. Engin gosvirkni hefur verið þar undanfarna daga, að sögn Veðurstofunnar. Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að aflétta almannavarnastigum vegna gossins.

Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir við AFP fréttastofauna að allt virðist benda til þess að gosinu hafi lokið. Enginn gosórói hafi sést á mælum stofnunarinnar frá því á laugardagsmorgun klukkan 7.  

Gosið hófst laust fyrir klukkan 19. laugardaginn 21. maí. Eftir gríðarmikið öskugos fyrstu tvo sólarhringana dró hratt úr gosinu og á miðvikudag var öskugosinu að mestu lokið.  

Að sögn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er framundan mikil vinna við hreinsun og uppbyggingu á svæðinu, sem verst varð úti í öskufallinu. Miðstöð þeirrar vinnu verði í þjónustumiðstöð almannavarna.

Þjónustumiðstöðin í grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri verður opin frá klukkan 10-13. Meginverkefni hennar er að sinna eftirmálum eldgossins í Grímsvötnum, sem snúa að íbúum, sveitarfélögum og uppbyggingarstarfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert