Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að viðamikilli rannsókn á þjófnaði úr verslunum. Í gær var verið að yfirheyra fólk og húsleitir gerðar til að leita að þýfi.
Rannsóknin beinist að erlendum aðilum, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, vegna gruns um skipulegan og mjög umfangsmikinn þjófnað úr verslunum.
Málið kom upp fyrir helgi og hefur verið unnið að rannsókn þess síðan, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.