Margt er um manninn á bensínafgreiðslustöðvum Atlantsolíu í dag en fyrirtækið fagnar 10 ára afmæli sínu. Í tilefni þess er veittur aukaafsláttur á eldsneytislítrann en að auki fá um 7.000 viðskiptavinir óvæntan glaðning; gosdrykk og nammi.
Boðið verður upp á glaðninginn til klukkan 18 í kvöld en eldsneytisafslátturinn, 10 krónur, er til miðnættis.