Leit að ísbirni er hætt

Ísbjörn eða ekki ísbjörn, það er spurningin.
Ísbjörn eða ekki ísbjörn, það er spurningin.

Formlegri leit að ísbirninum sem ferðamenn segjast hafa séð á Vatnsnesi hefur verið hætt í bili. Lögreglan á Blönduósi segir að leit verði ekki haldið áfram nema nýjar vísbendingar komi fram.

Yfirvöld á svæðinu verða þó með varann á næstu daga vegna bjarnarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert