Féll fram af 11. hæð

mbl.is/Hjörtur

Maður var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fallið fram af svölum húss í Lautasmára í Kópavogi í morgun. Huganlegt er talið að maðurinn hafi fallið fram af 11. hæð hússins.

Málið er í rannsókn og lögregla höfuðborgarsvæðisins gefur ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert