Gunnar segir engin viðræðuslit án aðkomu Alþingis

Gunnar Bragi Sveinsson og Stefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins á blaðamannafundi …
Gunnar Bragi Sveinsson og Stefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins á blaðamannafundi í Brussel. Skjáskot/EbS Channel

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist vera sammála Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um að bera eigi slit á aðildarviðræðum við Evrópusambandið undir Alþingi. Allt tal um að á döfinni sé að slíta viðræðum án aðkomu þess sé á misskilningi byggt.

Orð Gunnars Braga í síðustu viku vöktu umtal, þess efnis að samkvæmt lögfræðiáliti kæmi fram að þingsályktanir, líkt og aðildarumsóknin byggði á, sem ekki studdust við sérstaka heimild í lögum eða stjórnarskrá, væru ekki bindandi fyrir stjórnvöld umfram það sem af þingræðisvenjunni leiddi.

„Ég hef aldrei mótmælt því að þingið þurfi að taka endanlega ákvörðun. Það sem ég hef hins vegar sagt er að það megi lesa það út úr álitinu að þess þurfi ekki. Ég hef líka sagt að ég muni ekki eiga frumkvæði að því að leggja það til að svo verði gert. Því get ég tekið undir með Bjarna Benediktssyni að það sé eðlilegast að þingið taki þessa ákvörðun,“ segir Gunnar Bragi í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert