Hinsta ferð Fernöndu

Hringrás mun annast niðurrif flutningaskipsins Fernöndu í Helguvík. Í morgun voru landfestar skipsins leystar á Grundartanga og hinsta ferð þess hófst. Dráttarbáturinn Magni dregur skipið til Helguvíkur.

Þetta kemur fram í frétt frá Faxaflóahöfnum. Þar segir að ýmislegt hafi komið upp á í ferlinu frá bruna til förgunar og eitt og annað þurfi að skoða í ljósi reynslunnar. „Aðalatriði málsins er að Landhelgisgæslan stóð sem fyrr frábærlega að björgun áhafnar skipsins og gerði hvað hægt var til að draga úr líkum á að bruninn skapaði hættu á mengun.“

Átján dagar eru nú liðnir frá því að eldur kviknaði um borð í skipinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert