Lést eftir umferðarslys á Hellisheiði

Dagný Ösp Runólfsdóttir
Dagný Ösp Runólfsdóttir

Kona sem flutt var alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys á Hellisheiði í gær er látin. Hún hét Dagný Ösp Runólfsdóttir, fædd 20. janúar 1992 og búsett í Hveragerði. Hún var ógift og barnlaus.

Dagný var ökumaður fólksbifreiðar sem ekið var vestur Suðurlandsveg og lenti í árekstri við aðra fólksbifreið sem ekið var í gagnstæða átt. Slysið varð ofan við skíðaskálann í Hveradölum. Dagný var ein á ferð og þurfti að beita klippum úr tækjabíl slökkviliðs til að losa hana. 

Í hinni bifreiðinni voru móðir og tvö börn hennar, tveggja og átta ára. Annað barnið var um tíma á gjörgæslu Landspítalans vegna meiðsla sinna en hefur verið flutt á almenna deild. Meiðsl annarra eru minniháttar. 

Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Selfossi og eru allir þeir sem urðu vitni að aðdraganda slyssins beðnir að hafa samband í síma 480 1010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert