Lóan er komin á Seltjarnarnes

Fyrstu lóurnar eru komnar til landsins og munu kveða burt …
Fyrstu lóurnar eru komnar til landsins og munu kveða burt snjóinn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fyrstu farfuglarnir eru komnir. Í gær, sunnudag, sáust sex lóur í fjörunni nyrst við Seltjörn á Seltjarnarnesi.

Lóur hafa ekki sést hér á landi síðan í nóvember og þessir fuglar eru því fyrstu vorboðarnir.

„Þetta er óvenjulega snemmt,“ segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson fuglafræðingur. „Síðustu árin hafa fyrstu farfuglarnir, eins og lóa, grágæs og álftir, yfirleitt komið til landsins um miðjan mars og þá borist með sterkum suðlægum áttum. Að undanförnu hefur hins vegar verið mjög kalt á meginlandi Evrópu og sennilegt er að lóurnar við Seltjörn komi af þeim slóðum. Að þær hafi flúið kuldann suður í álfu og borist með vindum hingað.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert