Sjúklingar fara ekki í sumarfrí

Blóðbankinn.
Blóðbankinn. Kristinn Ingvarsson

„Við þurfum sárlega á þér að halda í dag,“ segir Blóðbankinn á samfélagsvefnum Facebook og hvetur fólk til að breiða út boðskapinn. Bankann vantar blóð í öllum blóðflokkum og biðlar til landsmanna að gefa blóð, hvort sem fólk er í Reykjavík eða á Akureyri.

Blóðbankinn minnir á að sjúklingar fari ekki í sumarfrí en þegar landsmenn eru á faraldsfæti gengur ver en vanalega að ná í blóðgjafa. Eftir sem áður en þörfin hjá Blóðbankanum 70 blóðgjafar á dag.

Blóðbankinn

Blóðbankann vantar helst blóð í blóðflokknum A+.
Blóðbankann vantar helst blóð í blóðflokknum A+.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert