Fjarskiptaþjónusta á Vestfjörðum úti

Míla
Míla

Bilun hefur komið upp í stofnkerfi Mílu á Vestfjörðum, á svæðinu milli Reykóla og Patreksfjarðar. Sökum þessa er fjarskiptaþjónusta á Vestfjörðum að hluta úti. Undirbúningur viðgerðar stendur yfir.

Uppfært 13.32

„Vegna fréttar mbl.is vill Vodafone góðfúslega taka fram, að ekki hafa orðið neinar truflanir á fjarskiptaþjónustu Vodafone á svæðinu. 

Af fyrirsögninni mætti draga þá ályktun að Vestfirðir væru fjarskiptasambandslausir, en sú er alls ekki raunin.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert