Svín gengur laust í Mosfellsbæ

Svínið og hundurinn léku sér saman á veginum.
Svínið og hundurinn léku sér saman á veginum.

Svín gengur nú laust á veginum við Tjaldanes í Mosfellsdal. Talið er að svínið sé gælusvín.

„Svínið var bara að leika sér þarna á veginum. Var í eltingaleik við hund,“ segir Oddný Þóra Logadóttir sem tók mynd af svíninu. „Ég veit ekki til þess að það sé svínabú hérna nálægt þannig að ég held að þetta sé gælusvín.“

Oddný segir að nokkrir bílar hafi stoppað til þess að athuga með svínið. „Ég var bara hérna í hláturskasti að taka myndina,“ segir hún.

Að mati Oddnýjar var svínið ekki hrætt. „Nei það var bara hresst. Að leika við hundinn og svona.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert