Aðstoðaði lærbrotna konu

Hinn 13 ára gamli Jason Ýmir Jónasson kom að konu sem hafði runnið á svelli í desembermánuði og lær- og úlnliðsbrotnað. Jason brást rétt við og hringdi í 112 og var verðlaunaður í dag sem ungi innhringjandi ársins á 112 deginum. Hann segir það hafa verið nokkuð snúið að leiðbeina sjúkrabílnum.

mbl.is hitti Jason í dag sem sagði okkur hvernig þetta hefði atvikast en óhappið átti sér stað í óveðrinu sem gekk yfir landið þann 16. desember síðastliðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert