Benda á sérstöðu íslenskra sauðfjárafurða

Á skildinum er bent á að íslenskar kindur hafi gengið …
Á skildinum er bent á að íslenskar kindur hafi gengið frjálsar frá landnámi 874..

Veitingastaðir sem setja íslenskt lambakjöt í öndvegi munu frá og með deginum í dag geta gert samning við Markaðsráð kindakjöts um að fá að nota nýtt upprunamerki fyrir íslenskar sauðfjárafurðir. Staðirnir fá sérstakan skjöld sem komið er fyrir við inngang, lambakjöt verður sérstaklega dregið fram á matseðli og þeir verða hluti af markaðsstarfi sem miðar að því að kynna erlendum ferðamönnum lambakjöt og aðrar sauðfjárafurðir. Fyrstu staðirnir sem taka þátt eru VOX og Grillið. Fjölmargir aðrir staðir fylgja í kjölfarið.

Þá verða íslenskar ullarafurðir eins og lopapeysur, húfur, vettlingar og teppi merkt sérstaklega með upprunamerkinu. Þær verslanir sem bjóða eingöngu upp á íslenskar ullarvörur fá að auki sérstakan skjöld við inngang samkvæmt samningi við Markaðsráð kindakjöts. Takmarkið er að merkja allar vörur úr íslenskri ull sem eru á boðstólum fyrir ferðamenn. Byrjað verður á því að merkja allar vörur hjá Handprjónasambandinu og ullar- og ferðamannaversluninni Og þó við Laugaveg.

Tilgangur merkisins er að draga fram og benda á sérstöðu, hreinleika og gæði íslenskra sauðfjárafurða. Unnið hefur verið að undirbúningi um nokkurra mánaða skeið í samvinnu við ýmis fyrirtæki og stofnanir, leiðsögumenn og aðila í ferðaþjónustu.

Ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, setti merkið upp í fyrsta skipti á veitingastaðnum VOX við Suðurlandsbraut í dag.

Merkið var sett upp á þremur öðrum stöðum í dag; Grillinu á Radisson Blu Saga Hótel,  Handprjónasambandinu við Skólavörðustíg og ullar- og ferðamannaversluninni Og þó við Laugaveg.

Merkið mun á næstum vikum og mánuðum vara sett upp hjá öðrum og ullarverslunum sem eru í samstarfi við Markaðsráð kindakjöts.

Ragnheiður Elín hengdi upp skjöldinn á Vox.
Ragnheiður Elín hengdi upp skjöldinn á Vox.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert