Þingfundi dagsins sem hófst kl. 10:30 í morgun var slitið nú, rétt eftir miðnætti. Helgi Hjörvar var síðasti maður í pontu í umræðu um fjárlagafrumvarp ársins 2016 en enn voru fimm á mælendaskrá þegar forseti þingsins sleit fundi.
Þingmenn eiga hinsvegar lítið helgarfrí í vændum þar sem þingfundur hefst aftur á morgun kl. 10.