Annar fanginn sem strauk úr fangelsinu að Sogni í gær er kominn í hendur lögreglu. Hann mun halda áfram afplánun sinni í fangelsinu að Litla-Hrauni.
Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður fangelsanna tveggja, staðfesti þetta í samtali við mbl.is en RÚV greindi fyrst frá málinu.
Fanginn fannst í Reykjavík. Áfram er leitað að hinum fanganum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi struku mennirnir saman frá Sogni en ekki liggur fyrir hvað þeir höfðu fyrir stafni eftir það.
Frétt mbl.is: Fangarnir enn ófundnir