Þrír einstaklingur hlutu fyrsta vinning í Víkingalottói í kvöld, en hver þeirra fékk 91,5 milljón í sinn hlut. Enginn fékk bónusvinninginn í þetta skiptið og heldur ekki fyrsta vinning í Jóker. Sjö spilarar hér á landi voru aftur á móti með fjórar af fimm tölum réttar í Jókernum og hlaut hver um sig 100 þúsund krónur.
Aðalvinningarnir fóru í þetta skiptið til Finnlands og Noregs, en í Noregi voru tveir með fyrsta vinninginn. Jókervinningsmiðarnir hér á landi voru keyptir í Euromarket á Smiðjuvegi, Olís Ánanaustum, Olís við Tryggvabraut, Brautarhóli og tveir í áskrift.