Heppinn miðaeigandi í Happdrætti DAS vann í gær 6 milljónir á tvöfaldan miða. Eigandinn reyndist þrítugur fjölskyldumaður frá Flúðum í Hrunamannahreppi. Var hann að vonum alsæll með vinninginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá DAS
Samkvæmt manninum er fjölskyldan í leiguhúsnæði og íbúðakaup hafi aðeins verið draumur hingað til. Nú væri hann kominn með 6 milljónir í innborgun á íbúð og gæti látið drauminn rætast.
Vinningsnúmerið í þetta skiptið var 55942.